Viðburðadagatal

janúar 2012
S Þ Mi Fi L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031EC

Á næstunni

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
27. janúar 2012

Brauð með morgunhressingu grunnskólanemenda

mozzerella_cheese

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. janúar tillögu fræðslunefndar að gefa foreldrum kost á að kaupa smurt brauð ásamt ávöxtum og grænmeti í morgunhressingu 3. Fundargerðir. a) Fundargerð 11. fundar fræðslunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 10. janúar 2012. Fundargerðin lögð fram og hún staðfest. Í dagskrárlið 2 skorar fræðslunefnd á sveitarstjórn aðgefa foreldrum kost á [...]

Lesa meira

26. janúar 2012

Leikskóladeildin opin kl. 13:00-16:00

Leikskóladeild Kerhólsskóla verður opin í dag frá kl. 13:00 – 16:00.  Veðrið hefur verið víða mjög slæmt í morgun og færðin sömuleiðis. Enn gengur á með éljum og skafrenningi víða í sveitarfélaginu þannig að forráðamenn meta hvort þeir koma með börnin eða ekki. Skólastjóri 

Lesa meira

Skóli fellur niður

Skóli fellur niður í dag vegna ófærðar og veðurs  í leik- og grunnskóladeildinni. Taka á stöðuna varðandi leikskóladeildina upp úr hádegi og sjá hvort leikskólinn verði opinn eftir hádegi. Forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með á heimasíðunni.  Skólastjóri

Lesa meira

20. janúar 2012

Þorrablót

IMG_7453

Í tilefni af þorrablóti leikskóladeildarinnar bjuggu börnin til þessa líka fínu víkingahjálma sem þau höfðu á höfði sér við borðhaldið í dag. Á boðstólnum var allur hefðbundinn þorramatur og börnin hvött til að smakka smá af öllu. Rann maturinn mis ljúflega niður, en hangikjötið og harðfiskurinn höfðu vinninginn í vinsældum og grjónagrauturinn var frábær eftirréttur. Má [...]

Lesa meira

18. janúar 2012

Vinasambönd leikskólanemenda og nemenda 5. – 6. bekkjar

Tinna og Ingileifur

Eitt af því sem við kynntumst í Björklund skole í Noregi var samstarf leikskólabarna við grunnskólanemendur. Í Björklund fóru nemendur 5.-6. bekkjar ásamt leikskólanemendum í vinnu út í skóg 1-2 sinnum í mánuði. Við í Kerhólsskóla höfum tekið svona vinasambönd upp og fóru nemendur 5.-6. bekkjar með leikskólanemendum í skógarferð fyrir jólin þar sem nemendur [...]

Lesa meira

Náms- og kynnisferð starfsmanna til Noregs síðastliðið haust

Hópurinn fyrir utan Björklund

Stór hluti starfsmanna ásamt nokkrum mökum fór til Noregs dagana 28. september til 2. októbers. Þar voru heimsóttir þrír skólar í Gran kommune sem er í um 70 km norður af Osló. Björklund skoleFyrri skólaheimsóknardaginn heimsótti allur hópurinn Björklund skole sem er leik- og grunnskóli með um 80 nemendur, 1 árs og upp í 7. bekk. [...]

Lesa meira

15. janúar 2012

Skólanámskráin er komin inn á heimasíðuna

Skólanámskrá 2

Skólanámskrá skólaársins 2011-2012 er komin inn á heimasíðuna. Til þess að nálgast hana er ýtt á linkinn hér fyrir ofan sem heitir; Skólinn. Þar fyrir neðan eru ýmsar upplýsingar um skólann, m.a. skólanámskráin. Í inngangi skólanámskrárinnar stendur: Skólanámskrá Kerhólsskóla er leiðarvísir um skólastarfið, ætluð nemendum, foreldrum, starfsfólki og öðrum þeim sem vilja kynna sér starfsemi skólans. Skólanámskráin er í [...]

Lesa meira

12. janúar 2012

Bókagjöf til skólans

Jóhanna gefur skólanum bækur

Í dag fimmtudaginn 12. janúar fékk skólinn höfðinglega bókagjöf frá  fjölskyldu í sveitarfélaginu. Það var hún Jóhanna Katrín  Bender á Borgarbrautinni sem kom færandi hendi með tvo fulla kassa af bókum. Helga Haraldsdóttir umsjónarmaður bókasafnsins tók á móti gjöfinni fyrir hönd skólans. Um er að ræða ýmsar barna- og unglingabækur eftir íslenska og erlenda höfunda. Má [...]

Lesa meira

10. janúar 2012

Kennsla fellur niður í grunnskóladeildinni í dag

Í dag, þriðjudaginn 10. janúar fellur kennsla niður í grunnskóladeild Kerhólsskóla og því enginn skólaakstur. Skólinn verður þó opinn fyrir þá nemendur og foreldra sem þurfa á því að halda. Leikskóladeildin verður opin fyrir þau börn sem koma í dag. Vakin er athygli á því að mikil ófærð er í sveitarfélaginu og veðurspáin er slæm fyrir daginn.  Það er [...]

Lesa meira

Skóli byrjar seinna í dag í grunnskóladeildinni

Í dag þriðjudaginn, 10. janúar fara skólabílarnir 2 klst. seinna af stað en venjulega vegna ófærðar. Skóli byrjar því kl. 10:30. Skólinn er hins vegar opinn fyrir þau börn sem koma fyrr. Staðan verður  tekin um kl. 9:30 og þá ákveðið hvort fella þurfi alveg niður kennslu í grunnskóladeildinni í dag eða ekki. Leikskóladeildin verður opin fyrir [...]

Lesa meira

Sjá allar fréttir